Sveskjusulta

Sveskjusultu nota ég svo til eingöngu í hálfmánagerð fyrir jólin. Hálfmánar eiga að vera með heimagerðri sveskjusultu, engin málamiðlun þar. Uppskriftin kemur frá Svöfu móðurömmu og ég fékk hana hjá mömmu.

400 g steinlausar sveskjur
4 dl vatn
2 dl sykur
1 kanilstöng

IMG_0245.JPGAllt sett í pott og soðið saman við vægan hita þar til sveskjurnar eru farnar að missa formið aðeins.  Getur þurft að bæta við vatni.  Passa þarf að sjóða ekki of lengi, þá verður sultan seig. Ég sýð sultuna í u.þ.b. klukkutíma, hræri í öðru hverju. Í lokin helli ég sultunni í skál, fjarlægi kanilstöngina og mauka svo sultuna með töfrasprota.

IMG_0246Sultan geymist í ísskáp í einhverjar vikur.

 

1 athugasemd á “Sveskjusulta

Færðu inn athugasemd