Sólberjalíkjör

Sólberjauppskeran var svo góð í ár að þegar ég var búin að sulta nægju mína átti ég slatta af berjum eftir. Þar með var komið tilvalið tækifæri til að prófa að gera sólberjalíkjör. Ég lagðist í smá rannsóknarvinnu á netinu og setti svo saman nokkrar hugmyndir sem ég fann og gerði líkjör sem átti að geta verið tilbúinn á aðventunni. Í sumum uppskriftum sem ég hef séð eru berin látin standa í vodkanu í 5 mánuði og svo er líkjörinn látinn standa í 2-3 mánuði áður en hann er drukkinn. Mín aðferð tekur talsvert styttri tíma. Þetta var í ágústlok og ég vildi að líkjörinn yrði drykkjarhæfur á þremur mánuðum.

28. ágúst

700 g hreinsuð og skoluð sólber s.s. engir stilkar
700 ml vodka – notaði færeyskt vodka, það var ódýrast í vínbúðinni
10 lítil blöð af sólberjarunnanum.

Berin og blöðin eru sett í krukku. Ég notaði 1,5 lítra krukku með smelltu loki sem reyndist vera hæfilega stór fyrir þennan skammt. Hellti svo vodkanu  yfir og lokaði krukkunni vandlega. Sennilega er í góðu lagi að hafa meira af berjum en gæta þarf þess að vökvinn fljóti vel yfir berin í krukkunni. Krukkan er svo geymd á dimmum og svölum stað eins og tíminn leyfir, gjarnan allt að fimm mánuði.

IMG_0084

7. nóvember

Komið er að næsta skrefi í líkjörsgerðinni. Byrja þarf á að útbúa sykurlög.

4 dl sykur
4 dl vatn

Vatn og sykur sett í pott og hitað rólega að suðu. Látið malla við meðalhita í nokkrar mínútur þar til sykurinn er alveg uppleystur í vatninu. Ég lét þetta krauma í svona 10 mínútur. Að suðu lokinni er sykurleginum hellt í annað ílát til að flýta fyrir kólnun. Úr þessu varð ca. 4,5 dl af sykurlegi.

IMG_0069Á meðan sykurlögurinn sýður er upplagt að snúa sér að berjakrukkunni sem er búin að standa í rúma 2 mánuði.

Dumbrauður vökvinn er sigtaður frá berjunum ofan í stóra skál og síðan er skálinni lokað vandlega svo vodkað sleppi ekki út. Blöðin fjarlægð frá berjunum og berin sett í blandara og maukuð. Sigti sett á skál og berjamaukið sett í sigtið og látið renna vel af. Það er alveg óhætt að þrýsta aðeins ofaná þetta til að fá sem mest af vökva með. Vökvanum af hratinu er svo hellt gegnum sigti í stóru skálina með berjavodkanu.

Þegar sykurlögurinn hefur kólnað svolítið (má alveg vera aðeins volgur) er honum bætt smám saman út í berjavodkað og smakkað öðru hverju þar til bragðið er eins og óskað er eftir. Ég notaði allan sykurlöginn. Útkoman var 1,3 l af sólberjalíkjör.

IMG_0075

Nú er að láta þetta standa á flöskunum allavega framundir jól.  Nú bíð ég bara spennt eftir að vita hvort þessi hraðferð skilar drekkandi líkjör, smakkið lofaði að minnsta kosti góðu.

11. desember

Líkjörinn er nú búinn að standa í kæli í rúman mánuð. Sennilega hefði verið í góðu lagi að geyma hann bara við stofuhita. Ég hellti honum í aðventukaröflu. Hann bragðast frábærlega, mikið berjabragð og hvorki of sætur né of sterkur. Hann er í karöflunni til hægri á myndinni og í litla glasinu fremst.

IMG_0231

 

Færðu inn athugasemd