Hálfmánar

Lengi vel kunni ég ekki að meta hálfmána og einbeitti mér frekar að öðrum smákökum á jólunum. Svo kom að því að ég uppgötvaði að smekkurinn hafði breyst. Nú eru þeir í uppáhaldi hjá mér. Mér er reyndar ekki sama hvernig þeir eru og ef ég á að vera hreinskilin finnst mér þeir sem gerðir eru eftir uppskrift mömmu og ömmu bera af. Í þá er notuð heimagerð sveskjusulta, allt annað er kák. Uppskrift að henni er hér. Úr uppskriftinni fást um 70 hálfmánar.

500 g hveiti
200 g smjör
200 g sykur
1 egg
1,5 dl mjólk (eða minna)
½ tsk kanill
½ tsk kardimommur
½ tsk hjartarsalt (alls ekki meira)

Hnoðað deig: Þurrefni sett fyrst og mjólk, egg og smjör hnoðað upp í. Þægilegt að gera þetta í hrærivél. Ég læt deigið bíða í kæli í sólarhing.

Flatt út. Mikilvægt er að nota eins lítið hveiti og hægt er þegar flatt er út, annars er hætt við að hálfmánarnir opnist í ofninum.

IMG_0258Stungnar út hringlaga kökur, um 1/2  tsk sulta sett á hvern hring, lagt saman og lokað, fyrst með fingrum.

IMG_0259Settir á plötu og þá lokað með gaffli (setja hveiti á gaffalinn) og loks penslaðir með eggi.

IMG_0256Bakaðir í miðjum ofni við 190°C í 12 mínútur.  Mæli með því að prófa að baka örfáa fyrst til að fínstilla hita og tíma. Eins og sést eru þeir ekki allir eins og vinna víst ekki fegurðarsamkeppni hálfmána, en bragðgóðir eru þeir.

IMG_0257

 

Færðu inn athugasemd