Tzatziki

Tzatziki er grískt heiti á sósu eða dýfu sem gerð er úr grískri jógúrt, agúrku, hvítlauk, ólífuolíu, sítrónusafa og kryddi. Svipaða sósu er að finna í matarhefðum margra landa og heitir þá bara eitthvað annað og kryddið örlítið frábrugðið. Við notum þessa sósu til dæmis með grískum kjötbollum eða grilluðum laxi eða grilluðu (lamba)kjöti. Hún… Halda áfram að lesa: Tzatziki

Lambapottréttur af marokkóskum ættum

Kona getur ekki látið allt þetta lambakjöt fara til spillis sem nú er til í landinu. Lambakjöt er hægt að nýta í fjölbreytta rétti og þótt kjötsúpa, læri eða hryggur standi alltaf fyrir sínu finnst mér skemmtilegra að elda lambakjöt í alls konar réttum. Í fjölmörgum löndum er rík hefð fyrir notkun lambakjöts og eitt… Halda áfram að lesa: Lambapottréttur af marokkóskum ættum

Kjötsósan okkar – grænmeti í dulargervi

Sennilega eiga margar fjölskyldur sína eigin útgáfu af kjötsósu sem borin er fram með spaghettíi eða öðru pasta. Fyrir u.þ.b. 20 árum þegar við vorum að leita allra leiða til að koma grænmeti í börnin okkar byrjuðum við að gera kjötsósu með miklu grænmeti þar sem kjötið er í raun í aukahlutverki. Síðan hefur þessi… Halda áfram að lesa: Kjötsósan okkar – grænmeti í dulargervi

Lambakæfa – unnið á kjötfallinu

Lambakjöt hefur víst safnast upp í landinu og töluverðar fyrningar eru frá fyrra ári nú þegar sláturtíð nálgast. Kona þarf auðvitað að leggja sitt af mörkum til að minnka fjallið og keypti því slatta af 2. flokks súpukjöti á tilboði til að gera úr kæfu. Uppskriftin er fengin frá mömmu fyrir mörgum árum síðan og… Halda áfram að lesa: Lambakæfa – unnið á kjötfallinu

Ferskjusulta

Þegar ég missti mig í ferskjukaupum í sumar (sjá Ferskju- og rabarbarasulta) gerði ég líka hreina ferskjusultu. Hún er bara býsna góð. 2 kg ferskjur 500 g sykur safi úr einni sítrónu Ferskjur flysjaðar (hér eru leiðbeiningar sem ég fann á pinterest), steinar fjarlægðir og restin skorin í litla bita. Nú hafa kílóin tvö rýrnað töluvert.… Halda áfram að lesa: Ferskjusulta